Þetta er næu
meira brasið með nýju heimasíðuna, jonalind.bloggar.is, hún
virðist hafa frosið eftir fyrstu færslu og fjórar
athugasemdir. samt get ég bloggað en það kemur ekki
fram grrrrrr, þoli ekki svona vesen. en allavega vona
ég að flestir fari inn hér áfram.
Í dag er vindur í
Lillehammer!!!hefur ekki verið vindur hér síðan við komum.
Þetta er nú ekki mikill vindur en trén bærast allavega hahah.
Hér er allt í góðum gír eins og venjulega og það er bolludagur
framundan eða fastelavnsdag. Norðmenn halda sinn
bolludag reyndar á sunnudaginn en íslendingar eru með hann í heila
viku...ekki satt
þegar ég fór í bæinn í gær átti ég von á að
bakaríin væru orðin full af bollum sem gott væri að gæða sér á en
nei ég sá í einu bakaríi auglýstar bollur og það var EIN TEGUND
TIL!!! og það var gerbolla með rjóma og flórsykri, ekki spennandi
það. En ég er komin með uppskriftir og það verður bakað hér á
morgun, vatnsdeigsbollur og norskar fastelavnsboller.
Hekla Dögg er búin að
eignast góða vinkonu hér og hún ætlar að gista hjá okkur í kvöld og
svo ætlar Hekla að gista hjá henni á laugaraginn. Silja Rán
er að fara á samæfingu alla helgina upp í Sjusjöen og svo er Rally
Norge í fullum gangi hér í kring og verður m.a. keyrt upp á
Birkebeinerstation og niður að stökkpallinum, það er mikið um
að vera í kringum rallýið og aldrei að vita nema maður kíki á
það.
Jæja læt þetta duga í
bili...lofa að skrifa fljótlega aftur og EKKI BORÐA YFIR YKKUR AF
BOLLUM UM HELGINA
kveðja Jóna Lind og
Lillehammergengið